�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1721 dögum
14.02.2008 12:59:57 / liturnar

Þá er fyrsta lítu baby-ið komið :D

Og það var lítill prins sem að kom í heiminn þann 13. febrúar hjá henni Jónu Huldu dúllu. :) og þar sem að hún er svona mikil dúlla er bókað mál að hann er það líka  :haha:

Strákurinn var 16 merkur og skv. sms-i sem að ég fékk í nótt er hann alveg eins og pabbi sinn ;)

Svo að nú óskum við litlu fjölskyldunni bara innilega til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn :d




Kv. Líturnar :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 07:19:09 / liturnar

Leikhúsferð??

Jæja elskurnar mínar.....mér finnst kominn tími á leikhúsferð :)

Mér datt í hug að við gætum kannski farið á Jesus Christ superstar....það er uppselt á allar sýningar þangað til febrúar svo að það væri nú ekki úr vegi að hugsa sig aðeins um en ekki of lengi svo að við getum fengið góð sæti....hvað finnst ykkur. En ef að það eru einhverjar hugmyndir af öðrum sýningum þá er það náttlega alveg frábært líka :D

Svo væri ekki vitlaust að reyna að hafa samband við þær lítur sem að eru ekki á landinu ennþá en gætu samt viljað koma með okkur haaa??

Segið hvað ykkur finnst.....

Miðaverðið á Jesus er 3600kr

 

 

 

Kv. Skelfir


» 9 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 12:19:34 / liturnar

AFMÆLI! AFMÆLI! AFMÆLI!

 HÚN Á AFMÆLI Í DAAAG!

Í dag er hún Tinna okkar orðin 21 árs gömul! er ég bara ein um að finnast það OLD eða?!;) Þessi mynd af henni er tekin á 19 ára afmælinu sem haldið var heima hjá henni... djöfull var það skemmtilegt partý! :haha:

En fyrir hönd lítanna segi ég bara til hamingju með daginn dúllan okkar og eigðu góðan dag! :D

:haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha:

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 17:01:35 / Magga

Hver og vill og verður????

 

   Hæhæ geiturnar mínar!!:)

                  Núna er liðin heil vika frá síðasta hittingi, og maður en nýfarin að verða svangur aftur, eða svona næstum því :)   Þá er bara spurning hver vill verða næsta fórnalamb!!?? tatataramm.....

             endilega kommentið á þetta!:)

                                                   Bless, bless og ekkert stress......

                                      


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 18:17:45 / Helena

Hvar eru Líturnar í dag?!

Ég ákvað að skella inn smá bloggi hérna fyrst að síðan okkar er að vakna til lífsins aftur:) Það ber titilinn: hvar eru Líturnar í dag?! datt í hug að það gæti verið gaman fyrir þá sem kíkja hér inn að sjá hvað við erum að gera þar sem margar okkar eru að gera eitthvað nýtt og miklar breytingar orðnar síðan þessi síða átti sér líf:haha: Nú hefst lesningin!

 

 

Andrea: Hún hefur haldið á vit ævintýranna í INDLANDI8| Ákvað að skella sér í sjálfboðastarf þar í landi þar sem hún er að kenna litlum börnum ensku og stærðfræði. Hún stefnir á að vera þar fram að áramótum og svo er held ég óvíst hvað tekur við eftir það! Ég held ég geti talað fyrir okkur allar með það að við söknum þín mikið litla mín:) 


Berglind: Flutti í Reykjavíkina í byrjun vetrar þar sem hún býr í kjallaraíbúð hjá Vilborgu frænku sinni með honum Kjartani sínum! Hún er á fullu í fjarnámi við FÁ því hún er að undirbúa sig undir nám í Nuddskóla Íslands.


 

Elísabet: Skellti sér í fjarnám í viðskiptafræði við Bifröst! Ekkert smá öflug að vera í fjarnámi í svona þungu námi. Þegar ég heyrði í henni fyrir stuttu gekk allt bara vonum framar hjá henni:) Hún býr með Palla sínum í sveitinni en þau eru svo að fara byggja sér eitt stykki hús í Víkinni á næsta ári.


 

Helena: Undirrituð ákvað að flytja af landi brott í heila 8 mánuði. Nánartiltekið til Englands þar sem ég er au-pair hjá breskri fjölskyldu! Kem svo heim og knúsa ykkur um jólin en held svo aftur út eftir áramót;)


Helga:Hún stundar nám í lögfræði við Háskólann í Reykjavík og stendur sig án efa með prýði! Helga og Guðni búa svo saman í íbúð foreldra hennar á Laugarnesvegi að mig minnir:)


 

Hjördís:Er að vinna sem snyrtifræðingur á Hótel Nordica Spa en er svo að fara í FB eftir áramót og ætlar að klára stúndentinn! Hún býr ásamt systur sinni og Önnu Betu í Álfkonuhvarfinu:)


 

Jóna: Er að læra sjúkraliðann og er nýbúin að festa kaup á íbúð í Hafnarfirði með honum Inga sínum:) Jóna er svo að verða fyrsta mamman í hópnum í febrúar og hlökkum við ekkert smá til að knúsa litla bumbubúann hennar:haha:


 

Magga:er á síðasta ári í Kvennó! Útskrifast af náttúrufræðibraut næsta vor:) Hún býr með honum Fannari sínum í Gullsmáranum góða þar sem þau seldu íbúðina sem þau voru í, í Hafnarfirði.


Tinna:er á ferðamálabraut í Menntaskólanum í Kópavogi! hún er nýkomin úr skólaferð til Ítalíu sem hún vann í samkeppni í skólanum í fyrra! Lucky bastard;) Tinns og Bjöggi búa í Hafnarfirðinum:)


 
 

Þorgerður: býr í Reykjavíkinni í íbúðinni hennar Sigrúnar! Hún byrjaði í íslensku í Háskóla Íslands í vetur en ákvað að leggja það aðeins til hliðar og vinnur núna sem þjónn á veitingastaðnum Ítalíu niðrí bæ:) Það er náttlega bara góður matur þar sko og ekki verra að láta Tótla litla þjóna:haha:

Jámm þar hafiði það! Langaði bara aðeins að segja ykkur hvað við erum að gera af okkur þessa dagana. Ætla að uppfæra tenglana aðeins og svona, vita hvort ég get ekki flikkað aðeins upp á þessa síðu tuðru okkar;) Endilega verum svo duglegar að blogga! Líka gott að nota síðuna undir svona hittingsskipuleggingar eins og þið eruð búnar að vera gera. Verst að geta ekki verið með í því bara:^)

Kveð í bili...

Ykkar, Helak!

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 17:05:27 / Magga

Hæhæ!:)

 

  Takk kærlega fyrir síðast, (þær sem mættu til Jónu:)) Nú er bara spurning hvenær við eigum að hafa næsta hitting...ég vil endilega bjóða ykkur í Gullsmárann:) Endilega kommentið hvenær hentar ykkur best!:) 

                                           

                                                          Kv. Max


» 12 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 11:38:30 / liturnar

ER EINHVER HÉRNA?????

Sælar stúlkur!

Það er svo sannarlega langt um liðið síðan þessi síða var hreyfð. 

Hvernig líst ykkur á að hafa hitting heima hjá mér næstkomandi fimmtudag sem sagt þann 25. okt... við getum eldað og fengið okkur kannski smá í glas (eða þið;) og bara hlegið, kjaftað og ÉTIÐ eins og okkur einum er lagið.  Er ekki stemning fyrir þessu???

 

kv. Jóna Hulda


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.06.2007 14:40:01 / Magga

stelpur!!!

 

     Það segir nú meira en margt að það er ég sem er að skrifa annað bloggið í röð!!

               Verðum að hrista aðeins uppí þessari síðu....Núna er ML-tjúttdýrin komin heim og finnst mér að þau geti sagt frá helstu atburðum og skandölum frá úgglöndum!;) 

                         Er í vinnunni..verð líklega rekin fyrir að vera í tölvunni.  Yfirmenn mínir eru svooo scary!! :S

                                                Bless í bili.   Maggs


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 15:28:34 / Magga

Merkisdagur!

 

      Í dag er merkilegur dagur, ekki einungis fyrir þær sakir að hún Hjördís Ásta á afmæli!!:) Til hamingju bjútíkvín!:)  Orðin 22 ára.....;)

                                          1

           Líka eru Fsu-skvísurnar Elísabet og Helena að útskrifast í dag!!:)   Svo á morgun útskrifast þeir úr ML!   Til hamingju allir!!

                                                 

                                    Segi þetta gott í bili.

                                           Kv. Magga sem er ekki að útskrifast.......

                       Já og í dag er eitt ár síðan við héldum til Spánar í ferð aldarinnar!!;) Fljótt að líða....

 

                                             


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 20:21:45 / Helena

Lííífið er yyyndisleeegt, sjáðu! Það er rétt að byrja hééér:)

Jææjaaaa!

Þessi síða er meira en lítið farin að mygla8| Líka sambandið á milli stúlknanna í þessum ágæta hópi;) Það er orðin ár og öld síðan við höfum hist allar saman! Það eru auðvitað margar ástæður fyrir því; mikið að gera hjá okkur öllum, erum á sitthvorum stöðunum, sumar eru orðnar giftar og fleira og fleira....

En nú er að koma sumar og þá bætum við úr þessu ekki satt?:D Við verðum allar í Vík í sumar nema Tinns og Jónus. En það er skylda að þær komi með okkur í ruglið 1. helgina í júlí og svo á ÞJÓÐHÁTÍÐ 2007:!::!::!: Vá hvað ég hlakka til!

Svo er framundan útskrift hjá nokkrum af okkur og eftir það er sumarið algerlega byrjað held ég:) Þá förum við allar að vinna nema laugarvatnsskvísurnar fara til Rhodos í langþráða útskriftarferð:) Það verður án efa algjört æði hjá þeim8)

En mig langar sem allra allra fyrst að við hittumst saman og grillum í góðu veðri, sötrum hvítvín og spjöllum eins og okkur einum er lagið:) Það er nú reyndar alveg árvisst hjá okkur á sumrin held ég. En ég veit reyndar ekki hvenær það getur verið, því nú er svo margt í gangi og svo fara stelpurnar til Rhodos stuttu eftir sína útskrift! Kemur í ljós bara! En hvernig lýst ykkur á þetta plan mitt?:haha:

Okei það er þá ekki fleira að sinni! See you soon:)

 


Sumarið er klárlega tíminn!!

» 7 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 14:22:57 / liturnar

Sælaaaar

 

   Ég fann á lyktinni að þessi síða er að mygla hjá okkur svo ég ætla að henda inn einum brandara.

            Vitiði af hverju Dorrit fékk íslenskan ríkisborgararétt svona snemma????

            Af því að við eigum ekkert orð sem rímar við forrit!

          Vonandi skemmtuð þið ykkur yfir þessum brandara.  Ég segi þetta gott í bili.

                                  


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.04.2007 22:58:31 / Þorgerður

Hæhó!

Gleðilega páska kannski!!!

Og takk fyrir síðast, þið sem voruð í Njálsbúð, þetta var alveg helvíti mikið stuð :) 

Nennir svo einhver að fara að blogga?

Kveðja, Garmur... 


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 21:49:17 / Helena

Jamm og jæja!

Jæja mig langar aðeins að hrissta upp í þessari síðu okkar!

Nú skilst mér að leiksýningarnar í ML séu búnar. Ég held að við allar Líturnar höfum farið á sýninguna og hún stóð sko alveg fyrir sínu og ég held ég geti alveg svarað fyrir ykkur hinar með það:haha: Andrea var að gera góða hluti sem gamla kynkalda skólastýran, Helga var hress sem "ein af genginu" og Lísa litla söng eins og engill:P Svo heyrði ég að það hefði verið alveg stappað í Iðnó þegar sýningin var það og færri komust að en vildu. Þið megið vera stolt af þessu afreki og það er nú ekki lítil vinna sem fylgir þessu skilst mér:)

Pwhahahahaha sjá hana:D

Helga gella;)
Hvað segiði svo annars? Ætla allir til síns heima í páskafríinu eða hvað? Endilega kommentið á það. Heyrðu svo sá ég auglýsingu í skólanum í dag um að Eins & Hinir væru að spila í Njálsbúð þann 4.apríl:) Spurning um að fjölmenna þangað eða hvað??! Það var allavega sick gaman í fyrra og maður hittir slatta af fólki sem maður þekkir og svona8) Bí there or be skver segi ég nú bara!!
Jæja það var svosem ekki fleira að sinni...bið bara að heilsa ykkur og eigið góða páska og úðiði í ykkur ógeðslega mikið af páskaeggjum af því þið eigið það skilið:haha:
Hey svo væri gaman að vita hver er að fara að vinna á Klaustri í sumar því það er ein búin að kjósa það í könnuninni hérna on the side! Er Andrea kannski búin að ákveða sig í laumi eða???

» 10 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 15:31:29 / liturnar

Afmæliskveðja!!

 

     Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Andrea, hún á afmæli í dag!!:D

                      Til hamingju með 20 ára afmælið Elsku Andrea okkar!!:*****

                 48

                                 Hafðu góðan dag sæta!!

                                             þúsund kossar frá okkur lítunum!!;)


» 12 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 12:39:04 / liturnar

Frábært leikrit

Ég vil benda fólki á frábært leikrit sem er í sýningu núna hjá Mími nemendafélaginu í ML.

Leikritiið heitir Í fyrrasumar og leikstjórinn er Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir. Það eru 3 Lítur sem koma nálægt þessu leikriti ogþað þekkja allir Jóhönnu svo það er skylda fyrir ykkur Lítur góðar að fara á þetta... allavega einu sinni. Þetta er mjög fyndið, ég lofa því:!: Þær sýningar sem eru eftir eru:

 Þriðjudagur   20. mars

á Selfossi

kl. 20:00

 

Miðvikudagur 21. mars

í Þorlákshöfn

kl. 20:00

 

Föstudagur    23. mars

í Gunnarshólma

kl. 20:00

 

Laugardagur  24. mars

í Vík

kl. 16:00

 

Sunnudagur   25. mars

á Flúðum

kl. 17:00

 

Mánudagur    26. mars

Iðnó Reykjavík

kl. 20:00

 

Miðvikudagur 28. mars

í Þykkvabæ

kl. 20:00

 

Ætlaði að troða einhverjum myndum hér inn svo þig sjáið hversu skemmtó þetts er en kunnti það ekki :S en hér getið þið skoðið eitthvað.

http://ml.is/Default.asp?Sid_Id=13180&tid=6&tre_Rod=004|&MpId=8189

 

Verðið ykkur að góði :D  vonandi sé ég ykkur sem flestar :lol:

... eða hvað? 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Klukkan